Til eru nokkrar leiðir til að fjármagna draumatækið. Algengast er að fólk velji bílalán og bílasamning en þó eru aðrar leiðir færar í þessum efnum. Sölumenn okkar geta gefið ýtarlegar upplýsingar um þær fjármögnunarleiðir sem í boði eru:
Bílalán
Fjármögnunarfyrirtæki veitir lán fyrir bílakaupunum og viðskiptavinur er skráður eigandi bílsins. Sem tryggingu fyrir láninu hefur
fjármögnunarfyrirtækið fyrsta veðrétt í bílnum.Veitt er allt að 60% lán fyrir nýtt tæki. Hægt er að
greiða inn á lánið eða greiða það upp hvenær sem er.
Bílasamningur
Þegar gerður er bílasamningur kaupir fjármögnunarfyrirtækið bílinn en viðskiptavinurinn er umráðamaður hans og eignast bílinn
í lok samningsinstímabilsins. Bílasamningur hefur þann kost að viðskiptavinurinn greiðir jafna upphæð út tímabilið. Hægt er
að fá lán fyrir allt að 60% af kaupverði bifreiðarinnar. Bílasamningur getur gilt til allt að 5ára við kaup á nýju tæki.


